25. nóvember 2006 klukkan 17:13
Já ég viðurkenni það að ég er komin í bullandi jólastuð. Og ég viður kenni það líka að það er alltof snemmt fyrir jólastuð en svona er þetta bara. Við bekkurinn tókum okkur nefnilega til í gær og skreyttum alla stofuna með allskonar jólaskrauti. Það var ógeðslega gaman, við sem gátum veriðeftir vorum eftir og skreyttum stofuna, við fílfuðumst auðvitað líka því að það er ekki annað hægt þegar maður er að skreyta stofuna akkúrat mánuði fyrir jólin. Já núna get ég sagt að það er innan við mánuður í jólin, yndislegt ekki satt. Ég er sterkelega farin að halda að ég sé eina jólabarnið hérna sem finnst svo gaman að undirbúa jólin.
Ég fékk þá spurningu í gær, hverjum mig hlakkar mest til að fá jólagjöf frá. Eftir mikla umhugsun þá áttaði égm ig á því að hvað sem ég fæ þá væri ég sátt við það. Það eina sem ég vil er að aðrir séu sáttir við gjafirnar sem ég gef. Að systkini mín geti notið gjafanna sem ég gef þeim. Það er nefnielga svona besta í heimi að horfa á systkini sín opna pakka frá manni og sjá brosið læðast fram í munnvikið þegar þau átta sig á því að þetta að dvd sem þeim hefur lengi langað í eða þá að þetta er einhvert tölvuleikur eða spil sem þau eiga ennþá eftir að prufa. Ég veit hinsvega ekki hvað ég ætla mér að gefa þeim núna í ár. Ég veit satt best að segja ekki hvort ég ætli mér að gefa eitthvað mikið af jólagjöfum í ár, mamma, pabbi, systkini mín og svo Bára besta vinkona mín. Svo mun ég bara gefa ættingjunum með mömmu eða pabba.
En já jæja ég er allveg að fara yfirum, hlustandi á jólatónlist og ekki einu sinni komin desember, svona er þetta orðið, þegar það er hvítt úti fyrir framna gluggann minn þá kemst ég í svo mikið jólastuð það er ekki eðlilegt.
Syng og skömm að ég kemst ekki á bretti núna, en það eru 3 ástæður fyrir því.
nr.1 Festingin af brettinu brotnaði af síðast þegar ég var á því og datt og pabbi ætlar að hjálpa mér að laga það(standa yfir mér allavegana) en við bara höfum ekki haft tíma til þess núna hingað til.
nr.2 ég þyrfti verulega að læra smá, klára þessar ritgerðir, enda ætla ég mér niður á borgarbókasafn á eftir og gera þær. ásamt þess að ég ætla mér að lesa Bárðarsögu
Nr. 3 Seinna í dag þarf ég að setjast niður með mömmu og skella saman nokkuð hundruð myndum í slideshow með tónlist því að það verður myndakvöld hjá fjölskyldunni annað kvöld og þar sem ég er manneskjan sem kann ekki að segja nei og kann þetta þá fellur ábyrgðin á mig.
En jæja, guð setur ekki meiri byrgðir á herðar okkar en við getum borið, þannig að ég held höfðunu hátt og redda því sem redda þarfo g kanski kemst ég jafnvel á bretti á morgun.
Ég hef áttað mig á því að ég hef ekki bloggað neitt sérlega mikið þessa vikuna endar er hún líka mikið búið að felast í sér að vera niðiri í skóla að læra eða fíflast. Ég er allavegana farin því að ég ætla mér niður á borgarbókasafn en ætla að koma við í nokkrum verslunum á leiðinni og spurja hvort þeim vanti ekki starfskraft, það er að fara með mig að vera ekki að vinna neitt. Fékk honestly (vinnu)heimþrá þegar krakkarnir í skólanum voru að tala um hvað þau voru að vinna við um sumarið og hvað þau eru fegin að þurfa ekki að vinna með skóla. Hehe skrítið ekki satt?